Atson var stofnsett árið 1936 og hefur frá upphafi framleitt einstakar, handgerðar vörur úr leðri. Í dag er fyrirtækið enn í eigu sömu fjölskyldu með sömu áherslur á gæði og endingu. Í Atson línunni er að finna mikið úrval af vörum gerðum úr íslensku roði. Roðið er í raun aukaafurð fiskveiða og því umhverfisvænt hráefni. Allar Atson vörurnar eru handgerðar á Íslandi, í hjarta Reykjavíkur. Þannig hefur það verið frá upphafi með einni undantekningu þó, en það eru hanskarnir sem eru saumaðir í Englandi.
Í Atson vörulínunni er eingöngu að finna hágæða ítalskt leður og íslenskt kálfa- og lambaskinn. Roðið er meðhöndlað með gamalli íslenskri vinnsluaðferð sem gerir það einstaklega sterkt, en sveigjanlegt.. Litaúrvalið er fjölbreytt sem og áferð skinnana sem gerir hverja vöru einstaka. Þau roð sem hvað mest eru notuð eru af laxi, hlýra og karfa.
Hönnuður og eigandi Atson er Edda Hrönn Atladóttir. Hennar einkennismerki eru vörur sem bæði hafa mikið notagildi og fallegt útlit. Hönnun hennar er alltaf full af því óvænta, enda hefur hún auga fyrir formum og smáatriðum sem gera vöruna einstaka. Hún er sérfræðingur á sviði leðurvinnslu og fylgir vörunni eftir frá upphafi til enda.
Verslun Atson Laugavegi 82, 101- Reykajvík
Sími 527 0060
Netfang: verslun@atson.is
Atson ehf. – Hönnun og smíði, Súðarvogi 32, 104-Reykjavík
Sími 561 0060
Netfang: edda@atson.is
Kt. 670711-0560
